Örnámskeið í refilsaumi í apríl og maí. Heimilisiðnaðarfélagið.
Uppselt hefur verið á öll námskeiðin sem haldin hafa verið. Hvert námskeið er eitt skipti, hefst kl. 10.00 og stendur til kl. 13.30. Útsaumspakki fylgir og þátttakendum er boðið á sýninguna Með verkum handanna.
Barnadagskrá: Teiknismiðja og tóvinna
Á barnaviðburðum vetrarins hafa safnkennarar einbeitt sér að handverki í tengslum við sýninguna Með verkum handanna, nú er komið að tóvinnu.
Leiðsögn með Lilju Árnadóttur. Síðasti sýningardagur.
Þann 5. maí, á síðasta sýningardegi, verður Lilja Árnadóttir sérfræðingur með leiðsögn um sýninguna.
Sýningaropnun: Brot úr framtíð
Sýningin Brot úr framtíð í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands byggir á listrannsókn og myndlistarverkefni Þorgerðar Ólafsdóttur þar sem hún veltir fyrir sér fyrirbærum tengdum mannöld og hugmyndum okkar um menningar- og náttúruarf.
Þjóð í mynd: Myndefni frá stofnun lýðveldis 1944
Kvikmyndasafn Íslands og Þjóðminjasafn Íslands munu standa saman að sýningu um stofnun lýðveldis á Íslandi hinn 17. júní 1944.
Lögréttutjöldin
Í tilefni 80 ára afmælishátíðar lýðveldis á Íslandi mun Þjóðminjasafn Íslands í samstarfi við Þjóðgarðinn á Þingvöllum sýna tjöld sem eru talin hafa hangið í Lögréttuhúsinu á Þingvöllum á síðari hluta 18. aldar.